Ég held að ég vilji vera fyrst til að opna það fyrir heiminum að þessi síða sé dauð ! Þar sem ég er nú einn af fyrstu aðstandendum síðunnar þá vil ég koma þessu á framfæri.
Við erum semsagt opinberlega dauðar, fyrir fullt og allt.
Þetta voru skemmtilegir 2-3 mánuðir með ykkur sætu, en þessi síða er bara alls ekki að gera sig. Við gerum þetta ekki því að einhver er í fýlu út í einhvern annan, þar sem við erum allar rosalega góðar vinkonur og munum (vonandi) allar halda sambandi hvað svo sem við gerum í lífinu
Vildi bara segja að ég elska ykkur stelpur og Bryndís...Þú ert fææææn !
BÚIÐ
AMEN
YFIR OG ÚT
» 1 hafa sagt sína skoðun
Hæhæ, Íris hérna! ég er ekki að nenna að vera með þessa síðu lengur elskurnar svo að ég kveð að sinni og segi bara Gleðileg JÓL!!!
» 7 hafa sagt sína skoðun
Okey þar sem Bryndís er að fara á límingunum yfir því að ég hef ekki bloggað nema 2var sinnum þá ákvað ég að eyða þessum leiðinlega dönskutíma [þar sem ég á að vera að gera próf] í að blogg eikkað smá fyrir ykkur sætu stelpur ;*
Myrkramessan er búin og skemmtum við okkur svona líka vel, þótt að ballið hafi kannksi ekki verið það besta, en ég, Bryndís og Guðrún Þ fundum okkur þá bara eikkað betra að gera eins og að drekka okkur fullar nema Bryndís á bakvið eikkað hommalegt hús. Skemmtilegt kvöld það þótt að ég geti ekki sagt að morguninn hafi verið neitt sérstaklega skemmtilegur, allavega ekki hjá mér. En það er önnur saga og ég vil helst ekkert vera að fara út í hana. Annars mjög fínt kvöld og bíðum við stelpurnar spenntar eftir næsta balli þar sem við stelpur verðum nú samt búnar að tryggja okkur fyrr. Hahaha stelpur þið vitið hvað ég meina.
Annars er það að frétta að jólaprófin eru að detta á okkur, aðeins 2 og hálf vika í blessuðu píningarnar og ég er ekki sátt, né tilbúin í prófin þar sem ég kann ekki neitt, get ekki neitt og nenni ekki neinu. Ekki nógu gott en samt...þá er mér líka nokkuð sama hvort ég falli eða ekki þar sem MK er ekki alveg mín deild. Ætla að skipta um skóla eftir áramót og kellan er á leiðinni í FÁ á nuddarabraut Hahah gaman það og stelpur þá skal ég nudda ykkur allar og sérstaklega þig Bryndís !
Ætla að enda þetta blogg á einni mjög skemmtilegri af Bryndísi á Myrkramessuballinu
Ingibjörg
» 3 hafa sagt sína skoðun
» 2 hafa sagt sína skoðun
Já þá er komið að einhverri mestu skemmtun ársins hjá MK-ingum og fleiri vel völdu fólki...MYRKRAMESSAN ! Hún er semmsagt á Sunnudagskvöldið 12. nóvember eða á morgun. Ballið byrjar klukkan 10 (held ég) en húsið opnar klukkan 9. Ballið er á Brodway sem er eikkers staðar niður í bæ, rétt hjá Laugardalnum og alveg næsta hús við FÁ eða Fjölbrautarskólann í Ármúla. ALLIR AÐ MÆTA !!!!!!!! Ég er að reyna að redda fyrirpartýi en það er ekki séns að það sé hægt að halda það heima hjá mér ! Þannig að nú er það bara svona...hver getur reddað okkur öllum fyrirpartýi klukkan kannski svona 7 á sunnudaginn ? Endilega svariði í commentum eða hringja í einhverja okkar til að gleðja okkur of mikið svo að við getum fengið okkur aðeins í tánna og skellt okkur svo galvaskar á ballið og dansað af okkur skónna
Annars er það að frétta hjá mér að ég er að upplifa fyrstu fríhelgina mína síðan ég byrjaði að byrjaði í skólanum og það er ekkert það skemmitlegt. Ég er ekki búin að gera neitt í allan dag nema sofa til 3, fara í rækitna, horfa á Lord of the Rings og svo skemmta mér í tölvunni ! En það er nú samt að fá að sofa út og það er allt í lagi að vera svona úthvíld einu sinni.
ÞAÐ ER SNJÓR ÚTI ! og ég er mjög glöð með það, því að það þetta er nú fyrsti snjórinn í vetur og mig langar mest til þess að fara út og renna mér að sleða niður allar brekkur, hlusta á jólalög í iPodinum og koma svo inn og fá heitt kakó og heitar smákökur hjá mömmu Smá svona barnalegar hugsanir en það er alltaf gott fyrir barnið í sjálfum sér ! En þetta er komið gott og núna ætla ég að reyna að einbeita mér að My Family ! Þannig að ég kveð ykkur og skipa ykkur öllum til að skemmta ykkur á Myrkramessunni og stelpur allar að koma með myndavél svo að við getum loksins sett einhverjar myndir inná síðuna
Ummm jólasnjór
Ingibjörg Rún Jóhannesdóttir
Já blessuð kæru lesendur, hvað segið þér gott??
pælið í því ef ég myndi skrifa svona og tala alltaf svona...já plöggið í því marr
En já ekki mikið að gerast núna undanfarið...bara þetta venjulega, skólli,vinna, læra og uuuuhh læra og læra....
Og auðvitað er blessaða Myrkramessan á sunnudaginn og ég hlakka ekkert SMÁ mikið til maður....allveg bara kreisí mikið sko.... það verður örugglega...nei hvað er ég að bulla það VERÐUR geðveikt mikið stuð á ballinu....
Ég, Magnea, Íris og Inga Jóna cvorum bara að koma heim úr Smáralindinni....mega stuð sko...fórum bara út um allt og bara :vóó hvað þetta er flott og Magnea og Íris áttu það til að setja á sig sólgleraugu og þykjast vera blindar haha...en það var geðveikt fyndið..... Ég keypti mér ógeðslega flottan bol í Topshop og svona Puma derhúfu í Intersport ógó flott marr....hehe Svo fórum við á Burger King og vorum allveg einar þar inni, allveg seinastar og vorum ekkert að drífa okkur og svo fórum ég og Inga Jóna að ná í jakkana okkar og úlpu og í tröppunum niður í gegnum vinnu-innganginn í Hagkaup bara hrundi ég ( nei Bryndís ég heiti ekki Hrund haha einkahúmor ) ég bara rann og Jón Ingi, kall sem er að vinna í Hagkaup bara: ekki rakstu hausinn í vegginn og ég allveg að kafna úr hláti og rétt næ að segja nei og Inga Jóna stendur í tröppunum allveg að deyja geðveikslega fyndið..... En já ekki meira um það
Svo þurftum við að bíða í sirka hálftíma eftir að mamma gæti sótt okkur og mega stuð þar á ferð sko... ég og Inga Jóna fórum að leika nokkur með skopparabolta....ég veit þroskinn allveg í hámarki haha Svo rann boltinn stunum einum of langt og við allveg eins og ég veit ekki hvað á eftir honum en það var einn gaur geðveikt góður og stoppaði boltan fyrir mig og rúllaði honum til mín Þetta var geðveikt fyndið samt sem áður að sjá Ingu Jónu hlaupa á eftir boltganum haha þvílík snilld
og já heyrðu marr var bara að taka eftir því að ég er að rústa þessari skoðunarkönnun haha
En ég nenni ekki að blogga meira núna þannig að ég kveð bara.....
Guðrún Þ. geðveikt þroskaða.......
fann hérna nokkrar gamlar og góðar myndir úr lokaferðinni úr Digró... enjoy....
Íris að dansa við hringitóna .....good times...good times haha
Ég einhvað að böggast í kojuni hennar Guðrúnar Ó.
og ein hérna að lokum af henni Ingu Jónu....það er nú í lagi að vera í fötunum vinkona...haha
» 9 hafa sagt sína skoðun
Guðrún Þorgerður er bara að rústa skoðannakönnuninni!!! við skulum sjá hvort við nennum að hafa hana í svona 50-100 atkvæði!! Goodbye and good luck!!! ;*
P.S. MUNA SVO, ALLIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA !!!!!
Vá, ég var í hljóðveri með hljómsveitinni í dag.. vá þetta var svo fyndið!
Signý: Oh ég fékk mér bara smá Cocoa puffs í morgun.
Ég: Hehe oj.
Signý: Nú hvað?
Ég: Nei bara, þú sagðir kúk og piss hehe.
Signý: Haha nei ég sagði Cocoa puffs!
Ég: Ó, HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!!!!
Signý: HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!!!!!
Svo hlógum við og hlógum og hlógum! Ó vááááá hallelúja þetta var guðdómlega fyndið!
Ætlaði bara að deila þessu með ykkur, verið þið sæl!
*Bryndís Freyja*
» 6 hafa sagt sína skoðun
Nei BLEEEE!!! Er ekki bara komin tími á að kellan fari að blogga duldið, humm?! Veistu ég held það bara!
Það er samt svo sem ekkert mikið að frétta af gellunni, ég fór ekki í skólan í dag því ég var og er svoleiðis ógó að kálast í fokking bakinu svo ég komst bara ekki fram úr rúminu en það er eitthvað að skána núna sko soo I'll live. En svona til að brigthn' my day þá var ég að fá mail frá dönskukennararnum mínum og ég þarf ekki að mæta í 2x dönskutíma um morguninn svo ég á ekki að mæta fyrr en 10!!!! og plús það að enskutími fellur niður hjá mér eftir hádegi svo að ég er búin kl 12,15 í skólanum!!!!! Svo að ég ætla að vera dugleg og fara í vinnuna eftir skóla svo að minns geti keypt einhverjar Jólagjafir í næsta mánuði! ó yeah jólin eru að koma!!!
En ég er ekki að nenna að blogga meira í bili, svo að ég verð bara í bandi over and out!!!
Svona er lífið já.. ætla hérna að sýna smá fyrst Ingibjörg hefur ekki gert það þótt hún hafi lofað því!
Já allavega, hérna er NMK myndin mín, alveg svakaleg..
Hérna kemur síðan mynd af mér eftir endajaxlatökuna í mínu versta ástandi, ég ábyrgist engin sjokk, áföll og martraðir, það er á ykkar ábyrgð að sjá þetta.. hahaha..!
Já, þarna er ég í hræðilegu ástandi, bólgin eins og ég veit ekki hvað, með band um hausinn til að festa kælipoka og alveg bara ógeðslega sjúskuð og vangefin..
Vildi bara svona aðeins sýna hérna hvernig ég var hahaha, vá hvað er ég að pæla.. að setja svona mynd á netið?? En jæja allavega, segjum þetta gott!
» 5 hafa sagt sína skoðun
Halló góðir hálsar!
Jæja já, ég get lofað ykkur því að þetta blogg verður nú ekkert eins neikvætt og þunglynt eins og síðasta blogg haha.
Allavega, nú er ég búin að vera í einangrun get ég sagt í heila viku. Mér er nú svona eiginlega batnað en samt ennþá einhver smá bólga eftir og litlir verkir. Er að fara á morgun að láta taka saumana og svona og síðan verður þetta bara allt búið!
Ég var eitthvað að pæla í að fara í skólann í morgun en ég svaf svo lítið í nótt og ég var með smá verki þannig að ég treysti mér ekki til þess. Vá í alvöru, ég svaf svo lítið, ég kemst ekki yfir það. Ég ætlaði að vera voðalega dugleg og fara að sofa klukkan 9.. síðan var klukkan 10.. 11.. 12.. 1.. 2.. 3.. svo man ég ekki meira, sofnaði örugglega eitthvað smá.. síðan vaknaði ég klukkan 5 og gat ekki sofnað aftur. Síðan var komið að skólatíma og ég ákvað að reyna að sofa meira og kannski fara í skólann seinna um daginn en nei ég gat bara alls ekki sofnað. Það var bara eins og það væri eitthvað að þessu yndislega rúmi mínu, þetta var ómögulegt. Þannig að ég skundaðist bara niður í stofu og í sófa, horfði smá á sjónvarpið og síðan steinsofnaði ég bara. Það semsagt var bara eitthvað að rúminu mínu! En þetta er allt í lagi rúm, ég fyrirgef þér alveg, you're still my best friend!
Jæja allavega, stelpur þið verðið að vera duglegri að blogga hérna, þeir einu sem blogga eru ég og Íris! Þetta gengur bara ekki lengur ha! En já, ég er semsagt á leiðinni í skólann á morgun og í stærðfræðipróf sem ég kann ekki rass í hahh, það verður nú ansi skrautlegt próf hjá mér
Þetta er komið nóg í kvöld, ég segi bara góða nótt og sofið rótt englarnir mínir!
Það hefur verið brotið blað í sögu þessarar síðu þar sem ég, Ingibjörg Rún Jóhannesdóttir, stofnandi og meðlimur þessarar síðu, er að blogga ! Það er búið að kvarta mikið í mér um að gera eikkað á síðunni og hér með tek ég þeirri áskorun með bros á vör og blogga Svo líka bara til að minna á það þá er ég búin að gera í *Ingibjörg Rún* eikkað smotterí um mig og vona ég að ykkur líki það stelpur !
Enn annars þá sit ég bara hérna inná bókasafni í þessum töluðu orðum og er í eyðu. Alein og yfirgefin sit ég hér í horninu og hafði ekkert að gera þannig að HALLÓ auðvitað blogga ég. Uhhh veit ekki alveg samt hvað ég á að segja hérna þannig að ég ætla að blogga um Bryndísi !
Ég ætla hér með að tileinka þetta blogg Bryndísi vegna þess að hún situr í þessum töluðu orðum heima hjá og er að deyja í kjaftinum eftir tannaðgerð sem hún fór í fyrir viku. Einu sinni fyrir svolítið löngu lofaði ég henni að blogga um hana þannig að hérna kemur það, nokkrum mánuðum of seinnt
Ég semsagt kynntist henni Bryndísi minni á lúðalegasta stað í heimi : Skólahljómsveit Kópavogs ! Þar vorum við báðar að spila á þverflautu þótt ég sé nú hætt þeirri yðju nú, en Bryndís er ennþá að og stendur sig eins og hetja ! Við kynntumst þar sem við vorum báðar ekkert smá flippaðar manneksjur. Við höfum nú brallað ýmislegt yfir dagana og ber þar helst að nefna : Plastglasakallana, Dú jú vona men, strætókónginn, sósa, Rassamæes og margt fleira. Við göngum nú í sama skóla, MK og er stelpan að standa sig vel þar. Við erum nú stofnendur þessarar síðu og eins og sést þá er hún að ganga alveg rosalega vel ! Bryndísi gengur vel í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur og er bara algjör snillingur. Aldrei hægt að vera í fýlu í kringum hana því hún kemur manni alltaf til að hlægja
Bryndís you rock my world
Takk fyrir
Jæja, mig langar helst til að deyja núna! Ég fór í þessa endajaxlaaðgerð í gær og vá.. mér finnst eins og ég sé í helvíti. Ég kom heim og svo byrjuðu þessir verkir og þeir bara hættu ekki ég fór bara að grenja sko! Þetta var svo vooooont, vá get ekki lýst því.. Síðan eru aukaverkanir af þessum lyfjum sem ég er að taka og mig svimar alveg, mér er óglatt, ég svitna og ég skelf. Í gær þá ældi ég því mér var svo óglatt! Síðan er ég alveg óóógeðslega bólgin í framan og ég þarf að vera endalaust með einhverja kælipoka á mér.. æi vá, mér líður svo illa, ég gæti dáið uhuhu! Mér er svo óglatt núna, æi vá, mig langar að grenja, ég get ekki beðið þangað til þetta er allt búið!!
Verið þið sæl..
Bryndís fársjúka..
Já,ég er sem sagt í íslenskutíma að láta mér leiðast því við eigum að gera eitthvað verkefni og ég er búin með það og nenni ekki að gera eitthvað annað svo ég ákvað bara að kíkja á ykkur hérna!!! Svo að mér leiðist og webmessengerinn minn er eitthvað klikk svo að ég hef ekkert að gera en núna er Agnes komin svo ég get farið að tala við hana, veriði dugleg að skirfa í gestabókin
» 0 hafa sagt sína skoðun